Tveir handteknir vegna ráns í 11-11

Ránið var framið í 11-11 í Skipholti.
Ránið var framið í 11-11 í Skipholti. Morgunblaðið/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um vopnað rán í 11-11 í Skipholti í gær. Ekki er hægt að staðfesta að um ræningjana sé að ræða enda eru þeir enn óhæfir til yfirheyrslu vegna annarlegs ástands. Mennirnir passa hins vegar við lýsingu og myndir úr öryggismyndavélum.

Tilkynning um ránið barst lögreglu kl. 11.24. Mennirnir ógnuðu starfsfólki með tveimur stórum hnífum og komust undan á bláum smábíl. Þeir höfðu einhver verðmæti upp úr krafsinu en ekki hefur verið gefið upp hversu mikil. Engan sakaði við ránið en tveir ungir starfsmenn voru við vinnu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert