Grjótpokar bíða við Öxarárfoss

Grjótpokarnir við Öxará
Grjótpokarnir við Öxará mbl.is/Jakob Fannar Sigurðsson

„Vonandi tekst að klára megnið af þessum framkvæmdum fyrir haustið. Grjótinu verður alla vega pakkað upp úr plastpokunum fyrir helgi,“ segir Sigurður Oddsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Vísar hann þar til mikils magns af grjóti, sem blasir við gestum þjóðgarðsins við enda göngustígsins, þegar gengið er inn að Öxarárfossi, og ætlað er að bæta aðgengið að fossinum með.

Sigurður segir ætlunina vera að hlaða grjótinu frá enda núverandi göngustígs meðfram berginu gegnt fossinum og mynda þannig undirstöðu fyrir göngustíg sem nýtast mun ferðafólki samtímis því að mynda grjótvörn til að hlífa gróðri vegna flóða sem myndast geta í ánni.

Að sögn Sigurðar hefur grjótið legið óhreyft síðan í upphafi árs 2008 þegar menn notuðu tækifærið í miklu frosti og góðu færi til að koma grjótinu inn að Öxarárfossi. Bendir hann á að lykilatriði hafi verið að koma grjótinu á áfangastað við réttar veðurfarsaðstæður til þess að valda sem minnstu raski á svæðinu.

Sigurður segir tafir hafa orðið á framkvæmdunum vegna annars vegar skorts á fjármögnun og hins vegar óvæntra atriða sem kölluðu á aðra forgangsröðun fjármuna þjóðgarðarins. Nefnir hann í því samhengi m.a. bruna Valhallar og fornleifar sem fundust þegar farið var í lagfæringar framan við Þingvallakirkju sem og lagfæringu annarra göngustíga. Segist hann þó vonast til þess að senn sjái fyrir endann á framkvæmdunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert