Björgunarsveitir aðstoða ferðalanga í vandræðum

Landmannalaugar
Landmannalaugar mbl.is/RAX

Björgunarsveitin Suðurnes sem er við hálendisgæslu að Fjallabaki hafði í nógu að snúast í gær og í nótt þar sem veður var afar slæmt. Í  Landmannalaugum fuku stór tjöld og þurfti að flytja fólk í skjól í Landmannahelli og aðra skála á svæðinu, m.a. gisti fólk á salernishúsum í Landmannalaugum. Björgunarsveitir eru nú að bjarga ferðafólki sem situr fast í bifreið í Hólmsá.

Einnig þurfti að sækja tvö meidda göngumenn, annan við Ljótapoll og hinn við Hrafntinnusker. Jepplingi var bjargað úr ánni í Landmannalaugum. Björgunarsveitir sóttu einnig erlenda ferðamenn í bíl sem voru stopp á Herðubreiðarhálsi þar sem þeir þorðu ekki að aka lengra vegna veðursins sem þar var.

Mikil úrkoma hefur verið að Fjallabaki og miklir vatnavextir í ám. Syðri Ófæra er nú sem beljandi fljót og ber nafn með rentu, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. 

Slysavarnafélagið Landsbjörg beinir þeim tilmælum til ferðalanga að gæta ítrustu varkárni þegar ferðast er að Fjallabaki, sérstaklega þegar fara þarf yfir óbrúaðar ár og læki. Litlir lækir eru orðnir illfærir, jafnvel þokkalega búnum jeppabifreiðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert