Gangur hefur verið í hvalveiðum í sumar og frá því að fyrsta tilkynning barst Fiskistofu 18. júní um veidda langreyði hefur verið tilkynnt um veiðar á 64 dýrum, 31 kvendýri og 33 törfum. Frá 27. maí s.l., þegar fyrsta tilkynning um veidda hrefnu barst hefur Fiskistofu verið tilkynnt um veiðar á 46 dýrum, 8 kvendýrum og 38 törfum.