Ríkisstjórnin vill að skattrannsóknarstjóri fái auknar heimildir til að kyrrsetja eignir þeirra sem liggja undir grun um skattsvik. Tilefnið er ekki síst frettir af milljarða fjármagnsflutningum frá Íslandi í þekkt skattaskjól.
Frumvarp um heimildir skattrannsóknarstjóra til að kyrrsetja eignir var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir segir að ráðherrar hafi átt fundi með sérstökum saksóknara og skattayfirvöldum um hvað þurfi til að herða tökin í rannsókn brota í tengslum við efnahagshrunið. Þá er að störfum sérstakur starfshópur sem skoðar skattalagabrot sem framin voru í tengslum við hrunið.
Þetta er aðeins hluti af þeim aðgerðum sem ráðast á í á næstunni til að auka heimildir eftirlits og rannsóknarstofnanna. Jóhanna segist vonast til að réttlætinu verði fullnægt sem allra fyrst.