„Ég óttast mjög að læknaskortur verði, m.a. út af kreppunni og afleiðingum hennar,“ segir Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands. Hún telur jafnframt líklegt að kreppan muni hafa þau áhrif að læknanemar muni leysa af lækna í ríkari mæli á sumrin.
Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir æ erfiðara að fá heilsugæslulækna til starfa.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.