Í júlí voru gerðir 65 makaskiptasamningar á fasteignamarkaði höfuðborgarsvæðisins. Þá var jafnframt 65 kaupsamningum þinglýst þar sem hluti kaupverðs var greiddur með lausafé og makaskiptum. Alls var 177 fasteignasamningum þinglýst í júlí og er það mestur fjöldi það sem af er árinu.
Makaskiptasamningar eru kaupsamningar þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Fasteignaskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um þinglýsta makaskiptasamninga á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2006 og má nálgast þær hér.