Lögreglan á Akureyri rannsakar mál þar sem manni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og hann beittur líkamsmeiðingum. Þrír menn eru í haldi lögreglu vegna málsins og hafa þeir verið úrskurðaðir í 5-7 daga gæsluvarðhald. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu.