Illa verðmerkt í verslunum

mbl.is/Þorkell

Fulltrúar Neytendastofu fóru í 78 verslanir á höfuðborgarsvæðinu í sumar til að kanna hvort vörur væru verðmerktar og hvort samræmi væri á milli verðs á hillu og í kassa. Engar athugasemdir voru gerðar í 9 verslunum en í Hagkaupum í Spönginni voru gerðar 22 athugasemdir.

Teknar voru af handahófi 50 vörutegundir í hverri matvöruverslunum.

Engar athugasemdir voru gerðar við verðmerkingar í 10-11 Baronstíg og Austurstræti, Nettó Salavegi, 11-11 Grensásvegi og í Hraunbæ, Kaskó Vesturbergi, Hagkaup Jafnaseli, Samkaup Búðarkór og Bónus Helluhrauni.

Þær verslanir sem komu verst út úr könnuninni voru Hagkaup Spönginni með 22 athugasemdir, 10-11 Langarima með 21 athugasemd og 10-11 Lágmúla með 20 athugasemdir.

Könnuninni verður fylgt eftir og teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert