Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitarmenn frá Hafnarfirði og Garðabæ eru á leið til byggða með konu, sem snéri sig á ökkla þar sem hún var á gangi á Helgafelli ofan Hafnarfjarðar.
Björgunarsveitarmennirnir fóru ásamt sjúkrabíl frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins til að sækja konuna, sem hefði ekki komist ofan af fjallinu af eigin rammleik.