Bílll valt út af veginum í Norðurárdal, norðan við Bifröst um kvöldmatarleytið og gjöreyðilagðist. Lögreglan í Borgarnesi fór á vettvang með sjúkrabifreið.
Einn maður mun hafa verið í bílnum. Hann var fluttur með sjúkrabifreið en mun ekki vera eins alvarlega slasaður og talið var í fyrstu.