Það sem af er árinu hafa 3.732 ökutæki verið nýskráð samanborið við 15.345 ökutæki eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta er 75,68% fækkun milli ára.
Það sem af er árinu hafa 47.356 eigendaskipti verið gerð á ökutækjum samanborið við 69.809 eigendaskipti eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta er 32% fækkun milli ára, að því er fram kemur í fréttabréfi Umferðarstofu.