Tveir voru handteknir eftir að hafa skvett málningu á danska sendiráðið í mótmælum þar fyrr í dag. Þeim var sleppt eftir viðtöl. Að sögn lögreglu var hópurinn fámennur, á bilinu 5-10 manns.
Fólkið kvaðst vera að sýna samstöðu með Írökum sem verið er að vísa úr landi í Danmörku. Meðal þeirra sem vísa á úr landi er Ali Nayef, sem á fjögurra ára son á Íslandi og hefur lýst vilja til að komast til Íslands.
Fólkið hellti rauðum vökva á sendiráðsbygginguna og kastað ávöxtum í hana.