Grunaður um ölvunarakstur

mbl.is/Július

Lögreglan á Selfossi tók fyrr í kvöld sextugan karlmann grunaðan um ölvunarakstur. Maðurinn hafði misst jeppa sinn út af á Nesjavallavegi þar sem vegfarandi kom að og gerði lögreglu viðvart. 

Karlmanninn sakaði ekki og var jeppinn lítið skemmdur. Tekið var hjá honum blóðsýni og reynist það jákvætt má hann búast við því að vera sviptur ökuréttindum í eitt ár auk þess að hljóta sekt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert