Halldóru Magnúsdóttur, aðstoðarskólastjóra Hvolsskóla um margra ára skeið, var ekki boðin staða skólastjóra þrátt fyrir að hafa verið metin hæfust umsækjenda. Á fundi sveitarstjórnar Rangárþings vestra á fimmtudag var ákveðið að slíta viðræðum við Halldóru , umsækjanda um skólastjórastöðu. Staðan var auglýst til umsóknar í vor og sóttu fjórir um stöðuna og voru tveir metnir hæfastir. Halldóra þótti hafa meiri stjórnunarreynslu, þekkingu og reynslu af skólastarfi og 23. júlí sl. var ákveðið að ganga til viðræðna við hana. Í síðustu viku var þeim viðræðum slitið og að sögn Elvars Eyvindssonar, sveitarstjóra Rangárþings eystra, er líklegt að sá umsækjandi sem einnig hafi verið metinn mjög hæfur verði ráðinn til starfans. Skólastarf hefst eftir rúma viku.
Málið er viðkvæmt og ljóst er að Halldóra er ekki sátt við stöðu mála. Þegar umræður um ráðningu skólastjóra hófust var fundinum lokað. Elvar segir að um persónulegt og viðkvæmt mál hafi verið að ræða og í slíkum tilvikum sé ekkert óeðlilegt við það að loka fundi. Ljóst er að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru ekki sáttir við Halldóru en fulltrúi K-lista mælti með ráðningu hennar en Halldóra hefur komið nálægt starfi K-listans.
Ólafur Eggertsson, oddviti
sveitarstjórnarinnar og fulltrúi K-listans, segir að sér finnist
viðsnúningur fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
óskiljanlegur. Það hafi alltaf ríkt einhugur um skólastarfið. Halldóra
hafi verið með ákveðnar hugmyndir sem ekki hafi verið sátt um. Hún hafi
fallið frá þeim hugmyndum og hugðist starfa eftir því skipulagi sem
skólinn hefur fylgt að undanförnu. „Það hefur verið unnið sérstaklega
gott starf í Hvolsskóla. Frumkvæði og nýsköpun í skólastarfi þar hefur
leitt til þess að skólafólk víða að hefur leitað í brunn þekkingar og
reynslu sem þar er. Þetta er óskiljanlegt.“