Valnefnd í Útskálaprestakalli ákvað á fundi sínum á mánudag að leggja til að sr. Sigurður Grétar Sigurðsson verði skipaður sóknarprestur í Útskálaprestakalli. Embættið veitist frá 1. september.
Tíu umsækjendur voru um embættið. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu fulltrúar Útskálaprestakalls ásamt prófasti Kjalarnessprófastsdæmis.