Ekið var á átta kindur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum síðustu helgi. Hraði ökumanna annað hvort að aukast eða ökumenn taka ekki lengur eftir sauðfé í vegakanti, segir lögregla.
„Svo virðist sem hraði ökumanna sé eitthvað að aukast eða þá að ökumenn taki ekki lengur eftir kindunum í vegkantinum", segir Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, í samtali við svæðisfréttir Vestfjarða og Vesturlands.
Hann segir það óvenjulegt að svo mörg
búfjárslys verði í umdæminu á ekki lengri tíma.