Tilboð Magma framlengt

Orkuver HS Orku.
Orkuver HS Orku.

Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur veitt Orkuveitu Reykjavíkur frest til 31. ágúst til að afgreiða kauptilboð fyrirtækisins á þriðjungshlut í HS Orku.  Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins að upphaflega átti tilboðið að gilda þar til í dag.

Orkuveitan bað um frest í kjölfar óskar fjármálaráðherra um að skoða málið nánar og hefur Magma nú orðið við því. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert