Það voru stoltir hundaeigendur sem stilltu sér upp eftir sýningu í Víðidal í Reykjavík, en um helgina fer fram afmælissýning Hundaræktarfélags Íslands.
Dómarar í keppninni koma frá Danmörku og Svíþjóð. Í dag sýndu ungir hundaeigendur hunda sýna. Á morgun byrjar sýningin kl. 9 og stendur fram yfir hádegi.