Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nú að talið sé að kveikt hafi verið í Range Rover jeppa, sem stóð utan við hús við Laufásveg í Reykjavík aðfaranótt 18. ágúst. Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýna þrjá menn, sem eru sterklega grunaðir um verknaðinn.
Lögreglan segir, að að talið sé að mennirnir hafi verið á bláleitri Audi A6 eða VW Passat bifreið. Samkvæmt myndskeiðum sem lögreglan hafi undir höndum sé talið að atburðarásin hafi átt sér stað á eftirfarandi hátt:
- Bifreið kemur akandi norðvestur Laufásveg frá gatnamótum Barónstígs og Laufásvegar. Talið er að um ræða bláa Audi A6 eða VW Passat bifreið sé að ræða. Bifreiðinni er síðan snúið við á Laufásveginum eins og sést á myndskeiðinu og ekið til baka að gatnamótum Laufásvegar og Barónstígs og væntanlega lagt þar (kl. 1:46).
- Þrír menn koma gangandi norðvestur Laufásveg, tveir þeirra eftir gangstéttinni vinstra megin og einn eftir gangstéttinni hægra megin. Ganga þeir í áttina að húsinu þar sem umrædd Range Rover bifreið var lagt í innkeyrslu, sem er í um 50 metra fjárlægð (kl. 1:48).
- Þá koma sömu 3 menn hlaupandi til baka, hver á eftir öðrum (kl. 1:50).
- Lögreglubifreið kemur með blikkandi ljósum að brunastað og skömmu síðar kemur slökkvibifreið auk annarar lögreglubifreiðar, en þá var Range Rover bifreiðin þegar orðin alelda (kl. 2:22).
- Einn af þremenningunum gengur vestur eftir Laufásvegi og framhjá brunastað (kl. 2:58).
Allir þeir sem hugsanlega geta aðstoðað lögreglu við rannsókn málsins og veitt upplýsingar sem að gagni koma um framangreindar mannaferðir eru beðnir um að hafa samband í upplýsingasíma lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu, 444 1100.
Mynd úr öryggismyndavélinni sýnir einn mannanna þriggja hlaupa á brott eftir að eldur kviknaði í bílnum.
Einn af þremenningunum gengur vestur eftir Laufásvegi og framhjá brunastað.