Ung stúlka sem missti stjórn á bíl sínum á Miklubraut upp úr kl. 13 í dag reyndist hvorki ölvuð né undir áhrifum fíkniefna, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá. Stúlkan var handjárnuð eftir óhappið þar sem lögreglunni hafði borist tilkynning um ölvunarakstur.
Að sögn lögreglunnar fer ákveðið ferli í gang undir slíkum kringumstæðum og þess vegna hafi stúlkan verið sett í járn.
Stúlkuna sakaði ekki en bíll hennar skemmdist talsvert.