Kona stungin á Njálsgötu

Tvær konur lentu í slagsmálum í íbúð við Njálsgötu í morgun og var önnur stungin með hníf eða öðru áhaldi, að sögn lögreglunnar. Atburðurinn var tilkynntur klukkan rúmlega 10. Konan mun ekki vera alvarlega særð en var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.

Ekið var á ljósastaur við Laugarásveg um sjöleytið. Nokkru síðar handtók lögreglan tvo menn sem voru á bílnum er lenti á staurnum og voru þeir báðir drukknir. Nóttin var hins vegar óvenju róleg, að sögn lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert