Lögreglan á Selfossi fór í húsleitir á tveimur stöðum í sýslunni á föstudag. Á báðum stöðum fannst tilbúinn landi á flöskum en tæki til framleiðslu hans á öðrum staðnum.
Lögreglan segir, að alls sé um að ræða nærri 30 lítra af tilbúnum landa og grunar lögreglu að hann hafi verið ætlaður til sölu.