Tólf sóttu um stöðu fiskistofustjóra en umsóknarfrestur rann út síðastliðinn fimmtudag. Þrír fyrrverandi þingmenn eru meðal umsækjenda.
Umsækjendur eru eftirfarandi:
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í stöðuna frá og með 1. september.
Árni Múli Jónasson var settur fiskistofustjóri 15. júní í sumar til 1. september. Árni Múli hefur undanfarin ár gegnt starfi aðstoðarfiskistofustjóra og verið staðgengill Þórðar Ásgeirssonar, sem verið hefur fiskistofustjóri frá stofnun Fiskistofu árið 1992. Þórður Ásgeirsson hefur ákveðið að láta af störfum.