Týr flutti pramma fyrir Ístak

Varðskipið Týr.
Varðskipið Týr. mbl.is/Sverrir

Varðskipið Týr er nú á heimleið frá Noregi en þangað var lagt af stað 15. ágúst með prammana Mikael og Gretti.  Nú er varðskipið á heimleið og er m.a. við eftirlitsstörf í Síldarsmugunni. 

Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að ferðin hafi gengið vel.

Þar segir að Ístak ehf. hafi haft samband við Landhelgisgæsluna í maí til að athuga hvort Landhelgisgæslan gæti dregið dýpkunarpramma til Noregs vegna hugsanlegs verkefnis þar. Ístak hafi að skoða málið vegna útboðs á hafnarframkvæmdum í Stamsund á Lofoten í Noregi. 

Þá segir að Gæslan hafi tekið vel í erindið. Það hafi þó verið tekið fram í upphafi af hálfu Landhelgisgæslunnar að það mundi aðeins taka að sér verkefnið ef enginn innlendur aðili gæti sinnt því. 

„Í júlí varð síðan ljóst að Ístak hafði fengið þetta verkefni.  Landhelgisgæslan sá margvísleg tækifæri í að sinna þessu verkefni. 

Í fyrsta lagi nýttist ferðin frá Noregi til eftirlits í Síldarsmugunni en íslenskt varðskip hefur ekki komið þangað í um 5 ár.  Með því að senda íslenskt varðskip í Síldarsmuguna minnir Landhelgigæslan á rétt Íslendinga á þessu hafsvæði og uppfyllir alþjóðlegar eftirlitsskyldur sínar sem aðili að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðinu (NEAFC). 

Í öðru lagi fengust töluverðar tekjur fyrir þetta verkefni, tekjur sem koma Landhelgisgæslunni mjög vel í erfiðu árferði. 

Í þriðja lagi gat Landhelgisgæslan með þessu móti aðstoðað íslenskt fyrirtæki í að afla sér verkefna erlendis en enginn annar íslenskur aðili gat dregið prammana.  Síðan má bæta því við að varðskipið Týr sótti heim Sortland við Lofoten, flotastöð norsku strandgæslunnar, en mikið og gott samstarf hefur ætíð verið meðal þjóðanna,“ segir í tilkynningu Gæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka