Þráinn Bertelsson, alþingismaður, sagðist á Alþingi í dag vilja hafna Icesave-samningnum og finna aðra lausn. Hann sagðist þó reyna að hugga sig við, að þegar þessu skelfilega máli sé lokið verði aftur hægt að snúa sér að því að hjálpa venjulegu fólki og almennri atvinnustarfsemi.
Þráinn, sem hefur sagt sig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar, er nú óháður þingmaður. Hann sagði að mistekist hefði hrapalega að gera viðunandi samninga um Icesave-reikningana þótt þeir, sem hefðu komið að málinu eftir að spilaborgin hrundi hefðu væntanlega verið allir af vilja gerðir til þess. Lausnin væri ófundin enn.
Eftir ræðu Þráins sagðist Siv Friðleifsdóttir, sem sat í forsetastóli, vilja biðja þingmenn í allri vinsemd að gæta orða sinna. Var hún væntanlega að vísa til þess, að Þráinn ræddi ítrekað í ræðu sinni um geðvillinga og gróðadólga sem hefðu komið Íslendingum á kaldan klaka.
Þráinn sagðist hafa haft af því lifibrauð síðustu 40 ár að gæta orða sinna enda væri íslenskan hans atvinnutæki. Sagðist hann hér eftir sem hingað til myndu reyna að gæta þess máls sem honum var gefið.