Sala á háhraðanettengingum er hafin í Skagafirði og Akrahreppi. Er þetta hluti af fjarskiptaáætlun samgönguráðuneytisins um að gefa öllum landsmönnum kost á háhraðanettengingu.
Fjarskiptasjóður stendur að baki uppbyggingu og sölu en uppbyggingunni er nú lokið. Sala og uppsetning er næsta skref en alls eru þetta 374 staðir sem um ræðir á þessu fyrsta markaðssvæði verkefnisins. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu.
Háhraðaverkefni fjarskiptasjóðs hófs formlega 25. febrúar síðastliðinn með undirritun samnings sjóðsins fyrir hönd samgönguráðuneytisins og Símans hf. sem átti hagkvæmasta tilboðið í verkefnið. Samið var um tengingu rúmlega 1.700 staða víðs vegar um land og eru verklok áætluð í árslok 2010.
Uppbygging á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi nýtur forgangs í verkáætlun.
Mismunandi tækni er notuð til að tengja hvern stað en hraði hverrar tengingar er meðal annars háður tækninni og fjarlægð staðar frá sendistöð. Tengingar í boði með 3G kerfi Símans verða 1Mb/s - 2Mb/s fram að verklokum. Eftir það verður boðið uppá pakka með meiri hraða. ADSL tengingar verða í boði þar sem hentugt verður að koma þeim við. Notuð verður gervihnattatækni í nokkrum undantekningartilvikum þar sem erfitt verður að koma við hefðbundnum aðgangsnetum.
Símanum hf. ber að bjóða íbúum þjónustu en þess er vænst að aðrir söluaðilar netþjónustu bjóði íbúum einnig þjónustu enda stendur það öllum söluaðilum til boða.