Fjármálaráðuneytið beinir nú þeim tilmælum til skattstjóra að fella tímabundið niður álag vegna skila aðila á landbúnaðarskrá á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga 1.september og gildi sú niðurfelling til 9.september 2009.
Telur ráðuneytið að vegna þeirra sérstöku aðstæða sem ríkja í þjóðfélaginu að gildar ástæður séu til að beita heimild laga til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjör aðila á landbúnaðarskrá vegna fyrri hluta ársins 2009.
Sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma sæta aðilar venjulega álagi til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður.
Þá þarf aðili að sæta álagi ef endurgreiðsla skatts hefur verið of há.
Í lögunum kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.