Könnun á leiguverði íbúða, sem birt er á heimasíðu Keilis, sýnir að hagstæðasta leigan á íbúðum fyrir námsmenn er hjá Keili á Ásbrú. Leigan hjá Keili er 30-50% lægri en á höfuðborgarsvæðinu og um 20% lægri en á Bifröst.
Könnunin var gerð í sumar, þegar fyrir lá hvert leiguverð íbúða yrði í vetur. Kostnaður við hita, rafmagn og sameign er ekki inni í þessum samanburði. Í íbúðum á Ásbrú er innifalið í leiguverðinu net og rútuferðir.