Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, sagði á flokksráðsfundi á Hvolsvelli í kvöld, að flokkurinn hefði í vetur staðið frammi fyrir því að taka afstöðu til þess hvort hann ætt að mynda fyrstu hreinu vinstristjórnina og hreinsa til eftir nærri tveggja áratuga óstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Þetta kom fram í hluta af ræðu Steingríms, sem birtur var í fréttum Ríkisútvarpsins.
Steingrímur sagði, að ríkisstjórnin stæði frammi fyrir erfiðu verkefni og löng og erfið fjallganga væri framundan en menn yrðu að sjá ljósið og horfa fram á veginn.
Fundurinn á Hvolsvelli heldur áfram í kvöld en honum lýkur um hádegisbil á morgun með afgreiðslu ályktana.