Raforkukerfið verði í almannaeign

Flokks­ráðsfund­ur Vinstri hreyf­ing­ar­inn­ar græns fram­boðs skor­ar á Alþingi og rík­is­stjórn að end­ur­skoða raf­orku­lög þar sem horfið verði frá nú­ver­andi hug­mynda­fræði. í álykt­un fund­ar­ins er hvatt til þess að hætt verði við markaðsvæðingu orku- og dreifi­kerf­anna og tryggt að þau verði í al­manna­eign um alla framtíð.

Þá leggst flokks­ráð VG ein­dregið gegn því að lausa­fjár­vandi sam­fé­lags­ins verði leyst­ur með sölu eða lang­tíma­framsali á auðlind­um og orku­fyr­ir­tækj­um. Í álykt­un um sam­eig­in­lega eign auðlinda seg­ir að í þeirri vá sem nú vofi yfir, þar sem Magma Energy og GGE séu ná­lægt því að eign­ast þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins og auðlind­ir á Reykja­nesi, sé það brýnna en nokkru sinni fyrr að Vinstri græn stöðvi þessi áform. Flokks­ráðið bein­ir því til ráðherra sinna, þing­manna og sveit­ar­stjórn­ar­manna að tryggja hags­muni þjóðar­inn­ar með því að halda HS orku í sam­fé­lags­legri eigu.

  • Álykt­un flokks­ráðsfund­ar VG um end­ur­skoðun raf­orku­laga
    Flokks­ráðsfund­ur Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar – græns fram­boðs hald­inn á Hvols­velli 28.-29. Ágúst 2009 skor­ar á Alþingi og rík­is­stjórn að end­ur­skoða raf­orku­lög þar sem horfið verði frá nú­ver­andi hug­mynda­fræði sem ein­göngu hef­ur skilað óhagræðingu, slak­ari þjón­ustu og hærra verði til neyt­enda. Jafn­framt verði hætt við markaðsvæðingu orku- og dreifi­kerf­anna og tryggt að þau verði í al­manna­eign um alla framtíð
  • Álykt­un flokks­ráðsfund­ar VG um sam­eig­in­lega eign auðlinda
    Flokks­ráðsfund­ur VG, hald­inn á Hvols­velli dag­ana 28.-29. ág­úst 2009, leggst ein­dregið gegn því að lausa­fjár­vandi sam­fé­lags­ins verði leyst­ur með sölu eða lang­tíma­framsali á auðlind­um og orku­fyr­ir­tækj­um.
    Í þeirri vá sem nú vof­ir yfir þar sem Magma Energy og GGE eru ná­lægt því að eign­ast þriðja stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins og auðlind­ir á Reykja­nesi er það brýnna en nokkru sinni fyrr að Vinstri græn stöðvi þessi áform. Flokks­ráðið bein­ir því til ráðherra sinna, þing­manna og sveit­ar­stjórn­ar­manna að tryggja hags­muni þjóðar­inn­ar með því að halda HS orku í sam­fé­lags­legri eigu. Aðeins þannig er hægt að tryggja að Hita­veita Suður­nesja var stofnuð um, árið 1974. Ljóst er að ekki er seinna vænna að breyta lög­um og reglu­gerðum þannig að al­manna­hags­mun­ir séu varðir og að sam­fé­lags­legt eign­ar­hald orku­fyr­ir­tækja og orku­auðlinda sé tryggt.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert