Íslensk kona var stöðvuð í öryggishliði á Billundflugvelli í gærkvöldi þegar í fórum hennar fundust töflur og vökvi sem talið var tengjast fíkniefnaneyslu. Þetta kemur fram á fréttavef blaðsins JyskeVestkysten.
Blaðið segir að um lítið magn hafi verið að ræða. Því hafi konan sloppið með sekt og hún fékk síðan að halda heim til Íslands.