Tilkynnt hefur verið um tvö innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Brotist var inn í íbúðarhúsnæði á Langholtsvegi en engu stolið. Húsráðendur voru heima þegar brotist var inn, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá.
Einnig var brotist inn í fyrirtæki í Þverholti. Enn liggur ekki fyrir hvort einhverju hafi verið stolið þaðan.