Samningar, sem stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær við Hafnarfjarðarbæ og Magma Energy, eru nú aðgengilegir á vef Orkuveitunnar.
Fram kemur á heimasíðu Orkuveitunnar að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hafi leitað heimildar Magma Energy fyrir birtingu samnings OR við fyrirtækið og hafi hún fengist.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, tilkynnti um birtinguna við upphaf fundar í borgarstjórn Reykjavíkur í dag, þar sem samningarnir verða til umræðu.
Samningarnir við Magma og Hafnarfjarðarbæ