Einn með réttarstöðu grunaðs

Nánast allt myndasafn leigunnar, um 40 þúsund kvikmyndir, eyðilagðist auk …
Nánast allt myndasafn leigunnar, um 40 þúsund kvikmyndir, eyðilagðist auk þess sem miklar skemmdir urðu á innanstokksmunum. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið karlmann sem er grunaður að hafa kveikt í Laugarásvídeói aðfararnótt sunnudags. Maðurinn var yfirheyrður í morgun og sleppt í framhaldinu. Skv. upplýsingum frá lögreglu hefur maðurinn réttarstöðu grunaðs.

Húsnæðið skemmdist mikið í eldsvoðanum. Þá eyðilagðist megnið af þeim kvikmyndum sem voru til á leigunni hafi eyðilagst í eldsvoðanum, en þær voru hátt í 40.000 talsins.

Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert