Laugavegurinn frá Frakkastíg og Bankastræti verður göngugata eftir hádegi á morgun og verður boðið upp á ókeypis bílastæði í bílahúsum á sama tíma.
Lokað verður um klukkan 13.00 á morgun og síðar um daginn mun tónlist hljóma um götur, samkvæmt fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.