Mörg innbrot á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is/Þorkell

Alls hafa 12 innbrot verið tilkynnt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá kl. sjö í morgun. Í nótt t.d. var brotist inn í Lágafellskóla og tölva tekin ófrjálsri hendi.

Einnig var brotist inn í bílskúr í Stapahrauni í Hafnafirði. Þaðan var tekin suðuvél og bónbrúsi.

Þá var einni af þremur fánastöngum Sægreifans við Geirsgötu stolið, en tilkynnt var um þjófnaðinn um kl. 10 í morgun.

Þá var brotist inn í bifreiðageymslu í Langagerði í Reykjavík, svo lögreglan nefni nokkur dæmi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert