Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, sagði í ræðu sinni við útskrift nemenda í dag að helsta ástæðan fyrir erfiðleikum okkar núna sé fámennið. Íslenska þjóðin sé alltof fámenn til að manna þá innviði og stofnanir sem þarf í nútíma þjóðfélagi, meðal annars með því eftirliti sem þarf. Fámennið orsakaði sömuleiðis spillt kunningjasamfélag þar sem tengslin og klíkur réðu ríkjum, segir Ágúst.
„Því fór sem fór og fámennið verður helsta ástæðan fyrir því að það verður erfitt að ná aftur til lands. Við getum ekki mannað nógu vel ráðandi stöður. Okkar vantar einfaldlega fólk, sagði Ágúst við útskriftina í dag.
Alls voru 115 nemendur brautskráðir, þar af 29 með meistaragráðu. Viðurkenningar fyrir bestan námsárangur hlutu Arnar Kristinsson, Ása Kristín Óskarsdóttir, Emma Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Páll Sigurðsson í grunnámi og Kristín Skúladóttir í meistaranámi.
Auk þeirra hlutu 17 nemendur sem enn stunda nám í skólanum afslátt eða niðurfellingu skólagjalda í viðurkenningarskyni fyrir góðan árangur.
Menntun ekki gefinn gaumur
Ágúst segir að ekki fari mikið fyrir því að orð menntamanna um að menntun sé sett í forgang og séu einskis virt. Hann segir að í stöðugleikasáttmálanum frá því í vor séu tvö orð sem ekki koma þar fyrir.
„Þessi orð eru menntun og skóli. Þetta eru skilaboð til okkar sem starfa í skólakerfinu að enn og aftur er menntun ekki gefinn gaumur. Það er þannig hjá núverandi stjórnvöldum og var eins hjá þeim síðustu og þar síðustu stjórnvöldum.
Áður komust þær þjóðir sem settu menntun í forgang fyrr út úr erfiðleikum sínum eins og Finnar. Við Íslendingar förum ekki þá leið og það er miður og í raun með öllu óskiljanlegt. Metnaðarleysi núverandi og fyrrverandi stjórnvalda í menntamálum mun verða okkur dýrkeypt og mun dýpka kreppuna og lengja," að sögn rektors háskólans á Bifröst.
Eiga sér enga afsökun
Þeir sem hafa hneppt börn þessa lands í skuldafjötra hafa enga afsökun og ég gef ekkert fyrir afsökunarbeiðni þeirra, segir Ágúst. „Stjórnendur, stjórnarmenn og stærstu hluthafa ber að dæma eftir lögum.
En þessa einstaklinga ber einnig að dæma eftir siðferðismati þjóðarinnar og sá dómur ber að vera harður. Ábyrgð þessara manna er mikil og þjóðin og sagan mun aldrei gleyma hlut þeirra í þessu mesta kerfishruni Íslandssögunnar," segir Ágúst.
Að sögn Ágústs hefur Háskólinn á Bifröst brugðist við þessum breyttu aðstæðum. Starfsfólki hefur verið fækkað og starfsmenn hafa tekið á sig launaskerðingu.
Ekkert verður af sameiningu
Fram kom í ræðu rektors að ekkert verði af áformum um sameiningu þriggja háskóla þar sem stjórn Listaháskólans var ekki reiðubúin í slíkar viðræður.
„Við útskrift í sumar kynnti ég áform um að Háskólinn á Bifröst, Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík kanni stofnun nýs háskóla á grunni þessara þriggja háskóla. Ekkert verður af þessari fyrirætlan þar sem stjórn Listaháskólans var ekki reiðubúin í slíkar viðræður. Það er miður en ekkert er við því að segja. Engar sameiningar eru því á döfinni hvað Háskólann á Bifröst varðar," segir Ágúst.