Sumarbústaður brann

Gamall sumarbústaður brann til kaldra kola við Þingvallavatn í nótt en engin slys urðu á fólki. Verið er að rannsaka eldsupptökin en grunur leikur á að kviknað hafi í bústaðnum út frá arni.

Eigendur bústaðarins höfðu reist nýjan bústað og sváfu þar þegar eldurinn kom upp. Gamli bústaðurinn var alelda þegar slökkvilið kom á staðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert