Ökumaður mótorhjóls, sem staðinn var að því að aka á 192 km hraða á Suðurlandsvegi í Flóa á fimmtudag, verður ákærður fyrir brotið. Í ljós kom að öðru mótorhjóli var ekið á eftir hjólinu og leiddi lögrelgan í ljós að það var á 140 km hraða.
Ökumaður hjólsins, sem ekið var á 192 km hraða, var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og gefin verður út ákæra á hendur manninum fyrir brotið. Lögreglan á Selfossi segir, að ökumaður hjólsins hafi ítrekað gerst sekur um umferðarlagabrot og hefur áður verið sviptur ökurétti á grundvelli punkta. Með broti þessu fyllir hann punktastöðu sína að nýju og megi því búast við að hann verðir sviptur ökuréttindum tímabundið vegna uppsafnaðra punkta.
Á eftir hjóli mannsins var ekið öðru mótorhjóli og vaknaði grunur um að því hefði einnig verið ekið of hratt enda þótt ekki hefði náðst mæling á hraða þess með ratsjá lögreglubifreiðarinnar. Í ljósi þess var farið í sérstakar mælingar á vettvangi á grundvelli upptöku úr eftirlitsmyndavél lögreglubifreiðarinnar og varð niðurstaða þeirra að síðara hjólinu hafi verið ekið með allt að 140 km/klst meðalhraða á 350 metra kafla þar sem mælingin fór fram.
Ökumaður þess hjóls var því boðaður í skýrslutöku og gekkst hann við broti sínu. Hann lýkur málinu með 90 þúsund króna sektargreiðslu og fær að auki 3 punkta í ökuferilsskrá.