N1 hefur ákveðið að lækka verð á bensíni um þrjár krónur lítrann og dísilolíu um tvær krónur lítrann. Segir félagið að skýringin á verðlækkuninni sé styrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar og lækkandi heimsmarkaðsverð.
Orkan reið á vaðið í morgun og lækkaði eldsneytisverð. Nú hafa flest önnur olíufélög fylgt í kjölfarið.