Hótaði starfsfólki í Kaupþingi

.
. Sverrir Vilhelmsson

Ölvaður karlmaður var með hótanir við starfsfólk Kaupþings í Hamraborg í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki fengust upplýsingar um hvað manninum gekk til. Var maðurinn á brott þegar lögregla kom á vettvang en náðist skömmu síðar. Var hann fluttur á lögreglustöð þar sem rætt er við manninn.

Á tíunda tímanum í morgun stöðvaði lögregla för ökumanns um Smáratorg í Kópavogi en hann reyndist ölvaður undir stýri. Var hann einnig fluttur á lögreglustöð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert