Laun hækkuðu milli ársfjórðunga

Laun í byggingariðnaði hafa lækkað á árinu.
Laun í byggingariðnaði hafa lækkað á árinu.

Regluleg laun voru að meðaltali 0,15% hærri á öðrum ársfjórðungi  en á þeim fyrsta. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,23% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna lækkuðu um 0,04%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,6%, þar af um 1,2% á almennum vinnumarkaði og um 9,5% hjá opinberum starfsmönnum.

Þetta kemur fram í úttekt Hagstofunnar.  Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 0,5% en laun iðnaðarmanna lækkuðu á sama tímabili um 0,2%. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 4,4% en laun stjórnenda lækkuðu hins vegar um 3,3% á sama tímabili.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í iðnaði 0,5%. Á sama tímabili lækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 1,1%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í iðnaði um 3,4 % en laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum lækkuðu um 1,3% á sama tímabili.

Samkvæmt ákvörðun Kjararáðs frá 10. mars 2009 lækkuðu regluleg heildarlaun dómara um 5-15% frá 15. mars 2009. Í samkomulagi Félags prófessora við ríkisháskóla og fjármálaráðherra f.h. ríkisjóðs, sem undirritað var þann 26. september 2008, var kveðið á um greiðslu sérstaks álags vegna gildistöku nýrra háskólalaga.  Ákvæði samkomulagsins gilti frá 1. september  2008 til 31. mars 2009, en frá þeim tíma féllu fyrrgreindar álagsgreiðslur niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert