Útlán dragast saman um 36%

Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður

Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 1,6 milljörðum króna í ágúst. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmlegir 100 milljónir vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins drógust saman um rúm 36 % frá fyrra mánuði.

Meðalútlán almennra lána voru um 9,8 milljónir króna í ágúst sem er um 3% minna en í fyrra mánuði. Þar með nema heildarútlán sjóðsins rúmum 21,4 milljörðum það sem af er árinu 2009 sem er um 46% minni útlán en fyrir sama tímabil árið 2008, að því er segir í mánaðaskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Heildarvelta íbúðabréfa í ágúst nam rúmum 99 milljörðum sem er 18% meiri velta en í fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur tæpum 630 milljörðum það sem af er árinu 2009.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 8,2 milljörðum króna í ágúst og voru afborganir íbúðabréfa stærsti hluti þeirra. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í ágúst námu um 950 milljónum krónum. Heildaruppgreiðslur allra lána Íbúðalánasjóðs eru því um 5,6 milljarðar króna sem af er árinu 2009.

Skýrsla sjóðsins í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert