Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði leggja til á fundi ráðsins í dag borgarráð samþykki að skipulags- og byggingarsviði verði í samráði við menningar- og ferðamálaráð falið að gera tillögu að staðsetningu minnisvarða um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar.
Helgi Hóseasson, sem lést nýverið, stóð flesta daga árum saman með mótmælaspjöld sín á umræddu horni.
Sett hefur verið upp síða á Facebook þar sem hvatt er til þess að minnisvarði um Helga verði settur upp á Langholtsvegi og hafa mörg þúsund manns skráð sig inn á síðuna.