Þremur starfsmönnum á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Eru uppsagnirnar liður í endurskipulagningu á starfsemi flokksins, samkvæmt heimildum blaðsins.
Samkvæmt sömu heimildum hafa tveir af þremur starfsmönnum, sem uppsagnir fengu, starfað lengi fyrir flokkinn. Annar í 25 ár og hinn í 18 ár. Þá mun starfshlutfalli hjá öðrum starfsmönnum hafa verið verið breytt.