Fáir bátar hafa farið til sjós vestan- og sunnanlands í morgun vegna brælu, að sögn Landhelgisgæslunnar. Nú í morgunsárið fóru Vestfirðingar að fara til sjós. Hins vegar er blíða fyrir norðan og eru margir á sjó t.d. frá Siglufirði og Eyjafjarðarhöfnum.