Héraðsdómur Suðurlands sakfelldi í morgun tvo drengi fyrir stórfelldar skemmdir á golfvellinum við Strönd í Rangárþingi ytra. Ákvörðun um refsingu var hins vegar frestað og fellur hún niður haldi drengirnir almennt skilorð í eitt ár.
Fjórir drengir voru upphaflega ákærðir en dómurinn sýknaði tvo þeirra þar sem þeir neituðu aðild að málinu og rannsóknargögn studdu ekki lýsingu í ákæru.
Drengirnir stálu golfbílum á Strandavelli í fyrrasumar, óku þeim um golfvallarsvæðið og ollu umtalsverðum skemmdum.
Dómurinn viðurkenndi bótaskyldu þeirra tveggja drengja sem sakfelldir voru en bótakrafa upp á rúmlega 1.600 þúsund krónur var skilin frá sakamálinu sem höfðað var á hendur drengjunum.
Héraðsdómur snuprar lögreglu í dómi sínum og segir rannsóknina alla og rannsóknargögn afar fátækleg.