Metframleiðsla á mjólk

Met­fram­leiðsla var á kúamjólk á nýliðnu verðlags­ári (1.9.2008-31.8.2009). Inn­lögð mjólk var 126.339.040 lítr­ar og hef­ur hún ekki áður verið meiri á einu verðlags­ári. Fram­leiðslan var tæp­lega 1,4 millj­ón­um lítra meiri en á sama tíma­bili í fyrra, sam­kvæmt frétt Lands­sam­bands kúa­bænda.

Bráðabirgðatöl­ur benda til að inn­lögð mjólk um­fram greiðslu­mark hafi verið 10,8 millj­ón­ir lítra. Á þeim búum sem ekki náðu að fylla greiðslu­markið hef­ur því sam­an­lagt vantað 3,5 millj­ón­ir lítra uppá, þar sem greiðslu­markið var 119 millj­ón­ir lítra.

Sal­an á prótein­gr­unni und­an­farna 12 mánuði er 118 millj­ón­ir lítra, hef­ur auk­ist um 1,6% á tíma­bil­inu. Sala á fitu­grunni er tæp­lega 115 millj­ón­ir lítra og hef­ur auk­ist um 3,8%. Þess ber þó að geta að duftsala í júlí sl. var miklu meiri en venja er til, vegna hækk­un­ar á því 1. ág­úst sl.

Á mynd­inni má sjá þró­un­ina í sölu á prótein- og fitu­grunni á tíma­bil­inu fe­brú­ar 2006 til ág­úst 2009. Á þeim tíma hef­ur veru­lega dregið sam­an í sölu verðefn­anna, í upp­hafi var hann 11,2 millj­ón­ir lítra en er nú kom­inn niður í 3,1 millj­ón lítra. Haldi þessi þróun áfram, verður komið á jafn­vægi í sölu á próteini og fitu snemma á ár­inu 2011. Þar ber þó að setja fyr­ir­vara um þróun mann­fjölda, neyslu­breyt­ing­ar o.s.frv.

Þróun á prótein- og fitusölu frá í febrúar 2006 til …
Þróun á prótein- og fitu­sölu frá í fe­brú­ar 2006 til ág­úst 2009.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert