Lögreglan á Húsavík hafði í nógu að snúast í nótt. Slagsmál blossuðu upp í tengslum við dansleik á öldurhúsi þar í bæ. Einnig var ráðist á pilt, sem staddur var í húsinu og brotnuðu tennur í honum.
Má búast við þremur líkamsárásarkærum í kjölfarið en einn gisti fangageymslur lögreglunnar.
Rólegt var hjá lögreglu annars staðar á Norðurlandinu í nótt.